Miðvikudaginn 6. nóv verðum við með Bjórglasasmiðju frá kl. 19 – 21 í Höfuðstöðinni í tilefni Feðradags. Við málum á bjórglös með enamel málningu. Skemmtileg kvöldstund fyrir foreldra & börn, saumaklúbba, staffapepp, vini, fjölskyldu og hópa.
Verð fyrir fullorðna er 5.500kr. og börn 4.500kr. Innifalið er:
Bjórglas og kassi til að geyma það í og allur efniviður.
Einn drykkur af barnum eða Töfrakrap fyrir börnin. Happy hour tilboð allt kvöldið.
Allir fara heim með sitt glas.