Áramótagrímusmiðja 29. des

Þriðjudaginn 29. desember frá kl. 19-21 verðum við með Áramótagrímusmiðju í Höfuðstöðinni. Tökum á móti nýju ári með glæsibrag! Í smiðjunni færðu að mála og skreyta þína eigin áramótagrímu með litum, glimmeri og glitrandi skreytingum. Úr verður einstök gríma sem setur svip sinn á áramótin og er tilvalin fyrir hátíðarhöldin. Skemmtileg kvöldstund fyrir saumaklúbba, staffapepp, vini og fjölskyldu.

Verð fyrir fullorðna er 4.900kr. og börn 3.900kr.
Innifalið er:
Ein hörð gríma og allur efniviður.
Einn drykkur á barnum og töfrakrap fyrir börnin.

*Barnamiðar gilda fyrir 15 ára og yngri

*Veljið pick up at Höfuðstöðin. Engir miðar eru úthlutaðir, nafnið ykkar verður skráð þegar þið mætið á viðburðinn.

3.900 kr. – 4.900 kr.