Kertamálun með heitu vaxi í desember

Í desember kveikjum við á sköpunargleðinni með vinsælu Kertamálun Höfuðstöðvarinnar. Hér málar þú hvítt kubbakerti með heitu, litríku vaxi og býrð til einstakt kerti sem lýsir upp dimmu vetrarkvöldin.

Dagsetningar:
Þriðjudaginn 1. des kl. 19 – 21
Miðvikudaginn 9. des kl. 19 – 21
Þriðjudaginn 15. des kl. 19 – 21
Þriðjudaginn 22. des kl. 19 – 21

 

Verð fyrir fullorðna er 4.500kr. og börn 3.500kr.
Innifalið er:
Eitt hvítt kubbakerti og efniviður.
Einn drykkur á barnum og 
töfrakrap fyrir börnin.
Skráning er hafin á www.hofudstodin.com

 

*Barnamiðar gilda fyrir 15 ára og yngri

*Veljið pick up at Höfuðstöðin. Engir miðar eru úthlutaðir, nafnið ykkar verður skráð þegar þið mætið á viðburðinn.

3.500 kr. – 4.500 kr.